Viðskipti erlent

Fella niður tolla á upplýsingatæknivöruflokkum

Atli Ísleifsson skrifar
Höfuðstöðvar WTO í Genf.
Höfuðstöðvar WTO í Genf. Vísir/Getty
Samkomulag náðist í dag á milli tæplega fimmtíu þátttökuríkja Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar WTO í viðræðum um útvíkkun svokallaðs upplýsingatæknivörusamnings (ITA-samningsins) um niðurfellingu tolla á rúmlega tvö hundruð upplýsingatæknivöruflokkum.

Í frétt á vef fastanefndar Íslands í Genf segir að aðilar að samkomulaginu séu meðal annars ESB, Bandaríkin, Kína, Kanada, Japan, Sviss, Noregur auk Íslands. Samningurinn er fyrsti samningur sem tengist WTO í átján ár sem fjallar um tollaniðurfellingar.

„Stefnt er að því að samningurinn taki gildi 1. júlí 2016 og falla tollar strax niður í langflestum vöruflokkunum en fyrir sumar vörur verða tollaniðurfellingar í fjórum áfangum til ársins 2019 þegar samningurinn kemst að fullu til framkvæmda.

Á árunum 2012 og 2013 fluttu íslensk fyrirtæki út vörur, s.s. rafeindavogir, röntgentæki og ýmis fjarskiptatæki, að verðmæti samtals 9 milljarða ISK sem njóta munu tollfríðinda samkvæmt samningnum,“ segir í fréttinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×