Innlent

Féll nokkra metra í Októberfest-tjaldinu

Gissur Sigurðsson skrifar
Háskólanemar hafa síðustu daga haldið Októberfest í tjaldinu.
Háskólanemar hafa síðustu daga haldið Októberfest í tjaldinu. Vísir/Andri Marínó
Maður slasaðist þegar hann féll nokkra metra niður úr stiga inni í stóru veislutjaldi skammt frá Háskóla Íslands í gærkvöldi. Hann var að vinna þar við að taka niður ljósabúnað þegar vindhviða kom inn í tjaldið og feykti til súlunni, sem stiginn var reistur við.

Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landsspíatlans en mun ekki vera lífshætttulega slasaður.

Októberfest Stúdentaráðs Háskóla Íslands, sem hófst síðastliðinn fimmtudag og staðið hefur yfir síðan, lauk í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×