Tónlist

Felix fagnar útgáfu með tónleikum

Felix Bergsson sendir nýlega frá sér plötuna Borgin.
Felix Bergsson sendir nýlega frá sér plötuna Borgin. Mynd/Einkasafn
„Við erum að fagna nýju plötunni á tónleikunum og förum yfir hana, ásamt því að leika nokkur lög af fyrri plötunni minni,“ segir leikarinn og tónlistarmaðurinn Felix Bergsson, en hann heldur útgáfutónleika annað kvöld á Café Rosenberg.

Hann sendi frá sér plötu sem ber titilinn Borgin í júlímánuði og inniheldur hún tíu lög. „Ég samdi texta við átta af tíu lögum plötunnar en á henni er að finna lög eftir frábæra lagahöfunda,“ segir Felix.

Tónlistarmenn á borð við Eberg, Jón Ólafsson,Sigurð Örn Jónsson og Dr. Gunna eiga lög á plötunni.  „Karl Olgeirsson á einnig tvö lög á plötunni og hann verður með mér á tónleikunum annað kvöld, ásamt frábærri hljómsveit,“ bætir Felix við.

Ásamt Karli leika þeir Stefán Már Magnússon á gítar, Friðrik Sturluson á bassa og Bassi Ólafsson á trommur. Þá er söngkonan Hildur Vala sérstakur gestur á tónleikunum.

Felix hefur í hyggju að kynna plötuna enn frekar með tónleikaferð um landið. „Ég tel það líklegt að ég fari um landið og kynni plötuna en það er þó ekki alveg staðfest hvenær tónleikaferðalagið hefst.“

Felix setti nýtt lag af Borginni í spilun nýlega og heitir það, Gemmér annan séns og er eftir Ottó Tynes og texti eftir Felix.

Tónleikarnir annað kvöld hefjast klukkan 21.00 á Café Rosenberg en miðasala fer fram við innganginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×