Innlent

Félag atvinnurekenda: Misráðið að fækka valkostum Íslands

Atli Ísleifsson skrifar
Birgir Bjarnason er formaður Félags atvinnurekenda.
Birgir Bjarnason er formaður Félags atvinnurekenda. Vísir/FA/Getty
Stjórn Félags atvinnurekenda mótmælir áformum ríkisstjórnarinnar um að leggja fram á nýjan leik tillögu um að slíta formlega aðildarviðræðum við Evrópusambandið og afturkalla umsókn Íslands um aðild að sambandinu. Þetta segir í ályktun stjórnar félagsins sem samþykkt var á fundi fyrr í dag.

„Þótt núverandi ríkisstjórn telji sig ekki hafa pólitískar forsendur til að ljúka aðildarviðræðum er afar óskynsamlegt og misráðið að fækka valkostum Íslands í peningamálum með því að afturkalla aðildarumsóknina. Það þýðir að telji stjórnvöld í landinu síðar að upptaka evru með ESB-aðild sé skynsamlegur kostur í peningamálum mun taka mun lengri tíma og verða kostnaðarsamara en ella að taka á ný upp viðræður við sambandið og ná því takmarki.

Sjá einnig: Samtök atvinnulífsins: Skynsamlegast og farsælast að ljúka aðildarviðræðum

FA telur að ekki séu forsendur til þess að skella þannig dyrum í lás á þessum tímapunkti. Stjórn FA telur jafnframt að það sé ábyrgðarlaust og ónauðsynlegt af hálfu ríkisstjórnarinnar að hella þannig olíu á eld pólitískra deilna á sama tíma og staðan á vinnumarkaði er erfiðari og viðkvæmari en um langt skeið.“

Sjá einnig: Samtök iðnaðarins: Eðlilegra að málið liggi frekar kyrrt

Stjórn félagsins skorar í ályktuninni á stjórnvöld að endurskoða afstöðu sína og útiloka ekki augljósa valkosti í peningamálum þjóðarinnar.


Tengdar fréttir

Fordæmalaus staða í ESB-viðræðunum

Allur dráttur á áframhaldi aðildarviðræðna ESB og Íslands tefur fyrir verði ákveðið að taka þráðinn upp að nýju. Pólitískan vilja þarf til að nýta þá vinnu sem þegar hefur verið unnin. Þar skiptir afstaða ríkisstjórnarinnar miklu máli.

Utanríkisráðherra segir ESB hafa breyst

Utanríkisráðherra segir væntanlega tillögu um viðræðuslit við ESB verða svipaða og fyrri tillögu en rökstuðningur og greinargerð taki breytingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×