Innlent

Fékk tvær milljónir í Jókernum

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Einn Íslendingur varð tveimur milljónum ríkari í kvöld.
Einn Íslendingur varð tveimur milljónum ríkari í kvöld. Vísir/Valli
Einn heppinn Lottóspilari fékk tvær milljónir króna í vinning fyrir að vera með allar Jókertölurnar í útdrætti kvöldsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Aðalvinningur kvöldsins gekk hins vegar ekki út þar sem enginn var með allar tölurnar réttar. Vinningurinn nam 6,3 milljónum króna. Fyrir vikið hækkar potturinn í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×