Fótbolti

Fékk spjald fyrir að faðma ömmu sína | Myndir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Florenzi og amma hans.
Florenzi og amma hans. Vísir/AFP
Alessandro Florenzi, leikmaður Roma, fékk að líta gula spjaldið í 2-0 sigri Rómverja á Cagliari um helgina.

Það er kannski ekki í frásögur færandi nema hvað hann fékk spjaldið fyrir að hlaupa upp í stúku á Ólympíuleikvanginum í Róm og faðma ömmu sína eftir að hafa skorað seinna mark Roma á 13. mínútu.

Sebastiano Peruzzo, dómari leiksins, var ekki hrifinn af þessu uppátæki og spjaldaði Florenzi þegar markaskorarinn sneri aftur inn á völlinn. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum var þetta í fyrsta heimsókn ömmunnar á Ólympíuleikvanginn til að sjá barnabarnið spila.

Mattia Destro skoraði fyrra mark Roma sem er í toppsæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir.

Vísir/AFP
Vísir/AFP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×