Lífið

Fékk sér húðflúr til minningar um Joan Rivers

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tískumógúllinn Kelly Osbourne fékk sér húðflúr í gær til að heiðra minningu vinkonu sinnar Joan Rivers sem lést fyrr á árinu.

Kelly lét húðflúra á sig fiðrildi á hægri öxlina og leyfði aðdáendum að fylgjast með herlegheitunum á Instagram.

Kelly og Joan voru miklar vinkonur og tók sú fyrrnefnda andlát hinnar síðarnefndu mjög nærri sér en þær stjórnuðu þættinum Fashion Police á sjónvarpsstöðinni E! saman ásamt öðrum.

 
Getting a tattoo from tattoo legend #MarkMahoney @sharmrockSocialClub!

Uma foto publicada por Kelly Osbourne (@kellyosbourne) em Out 10, 2014 at 7:17 PDT


Tengdar fréttir

Seinni eiginmaðurinn tók sitt eigið líf

Spéfuglinn Joan Rivers lést á fimmtudagskvöldið, 81 árs að aldri. Joan var umdeild, hispurslaus, hreinskilin og sagði ávallt nákvæmlega það sem hún var að hugsa en einkalíf hennar var enginn dans á rósum.

Joan Rivers látin

Grínistinn hætti að anda miðri hálsskurðaðgerð í síðustu viku og hafði legið þungt haldin undanfarna daga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×