Sport

Fékk óblíðar móttökur í heimkomunni í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Brock Osweiler heyrði oft lítið fyrir baulinu í áhorfendum.
Brock Osweiler heyrði oft lítið fyrir baulinu í áhorfendum. Vísir/Getty
Brock Osweiler varð NFL-meistari með Denver Broncos í fyrra. Hann leysti af Payton Manning þegar þess var þörf. Þegar Manning lagði skóna á hilluna eftir tímabilið bjuggust allir við því að Osweiler tæki við keflinu. Það fór ekki svo.

Osweiler elti risasamning og fór til Houston Texans og NFL-meistarar Denver Broncos misstu því báða leikstjórnendur sína á sama bretti.

Þetta var spurning um peninga en samt var ekkert rosalega mikill munur. Denver Broncos bauð 16 milljónir dollara á ári en hann fékk 18 milljón dollara á ári frá Houston Texans. Tvær milljónir dollara eru samt 229 milljónir íslenskra króna.

Brock Osweiler snéri aftur til Denver í Mánudagsleik NFL-deildarinnar í nótt og það er óhætt að segja að hann hafi fengið þar óblíðar móttökur, bæði inn á vellinum sem og frá stuðningsmönnum Broncos í stúkunni.

Stuðningsmenn Denver Broncos púuðu á sinn gamla leikmann við hvert tækifæri sem komst síðan lítið áleiðis inn á vellinum á móti öflugum varnarmönnum Denver. Brock Osweiler talaði um ást sína á Denver Broncos en fékk ekkert nema hatur til baka.

Denver Broncos vann á endanum öruggan 27-9 sigur. Grimmir varnarmenn Denver-liðsins sóttu að Brock Osweiler úr öllum áttum og aðeins 22 af 41 sendingum hans heppnuðust. Osweiler náði ekki að kasta fyrir snertimarki og missti síðan boltann í lokaleikhlutanum sem gerði endanlega út um leikinn.

Houston Texans liðið var reyndar 6-0 yfir eftir fyrsta leikhlutann þökk sé tveimur vallarmörkum en NFL-meistararnir voru komnir í 14-6 í hálfleik og unnu svo öruggan sigur.

Nýliðinn Trevor Siemian fyllti í skarð þeirra Payton Manning og Brock Osweiler og hefur staðið sig mjög vel á sínu fyrsta tímabili þar sem Denver-liðið hefur unnið 5 af 7 leikjum sínum.

Spekingarnir í ameríska fótboltanum munu örugglega keppast við að gagnrýna ákvörðun Osweiler í þessari viku en hann er kannski fegnastur að vera búinn með þennan leik. Það er nóg eftir af tímabilinu því Houston Texans hefur unnið 4 af 7 leikjum sínum og er efst í sínum riðli er suðurriðill Ameríkudeildarinnar.

Brock Osweiler og Trevor Siemian eftir leik.Vísir/Getty
NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×