Handbolti

Fékk kaldar kveðjur frá uppeldisfélaginu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Andri Berg Haraldsson með skot að marki fyrir FH. Þau verða ekki fleiri.
Andri Berg Haraldsson með skot að marki fyrir FH. Þau verða ekki fleiri. vísir/vilhelm
Andri Berg Haraldsson, leikmaður FH í Olís-deild karla í handbolta, hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Hafnafjarðarliðið.

Fram kemur á handboltavefnum fimmeinn.is að Andri Berg er að yfirgefa uppeldisfélagið sem hann hefur spilað lykilhlutverk hjá undanfarin tímabil.

Andri Berg spilaði 20 af 22 leikjum FH í deildinni á síðustu leiktíð er það hafnaði í sjötta sæti. FH-ingar töpuðu svo í oddaleik fyrir Aftureldingu í átta liða úrslitum deildarinnar.

Andri, sem hefur einnig spilað fyrir Fram og Víking, er afar ósáttur við viðskilnaðinn og vandar FH-ingum ekki kveðjurnar í viðtali við fimmeinn.

„Þeir höfðu ekki áhuga á að hafa mig áfram og í dag er framhaldið óráðið. Þetta er hið furðulegasta mál þykir mér og kaldar kveðjur frá uppeldisfélaginu,“ segir Andri Berg sem er nú í leit að nýju félagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×