Sport

Fékk greitt fyrir að tapa gegn Rourke

Rourke fagnar sigri í bardaganum.
Rourke fagnar sigri í bardaganum. vísir/getty
Það vakti gríðarlega athygli þegar hinn 62 ára gamli leikari, Mickey Rourke, ákvað að fara að keppa aftur í hnefaleikum á gamals aldri.

Það vakti ekki síður athygli að hann skildi rota Elliot Seymour í annarri lotu bardagans. Þá strax fóru í gang sögusagnir um að hann hefði tapað viljandi en Seymour neitaði þeim.

Hann hefur nú viðurkennt að hafa tapað viljandi og þegið fyrir það tæpar tvær milljónir króna. Skal engan undra að Seymour hafi tekið tilboðinu enda verið heimilislaus í eitt og hálft ár.

Seymour, sem hefur tapað níu af tíu bardögum sínum, segir þó að Rourke hafi ekki vitað af þessu fyrirkomulagi sem hann gerði við menn tengda leikaranum.

Búið er að setja Seymour í bann í New Jersey og LA og hann mun líklega aldrei taka þátt í alvöru bardaga aftur. Bardaginn gegn Rourke var ekki alvöru bardagi.

Rourke er hér að klára Seymour.vísir/getty
Box

Tengdar fréttir

Mickey Rourke sneri aftur í hringinn | Myndir

Bandaríski leikarinn Mickey Rourke sneri aftur í boxhringinn í gær. Rourke, sem er 62 ára, atti þá kappi við Elliot Seymour, sem er 33 árum yngri en leikarinn, en bardaginn fór fram í Moskvu í Rússlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×