Glamour

Fékk fjölskylduna í auglýsingarnar

Adda Soffia Ingvarsdóttir skrifar
Charlotte Tilbury ásamt konunum í lífi sínu.
Charlotte Tilbury ásamt konunum í lífi sínu.
Förðunarmeistarinn, eða hreinlega drottningin, Charlotte Tilbury kynnti til sögunnar förðunarherferðina Smokey eye 'till I die í dag. 

Charlotte hefur slegið í gegn undanfarið með förðunarvörum sínum, en þær þykja einstaklega glæsilegar og góðar. 

Í smokey herferðinni fékk hún konurnar í sinni nánustu fjölskyldu til þess að sitja fyrir; mömmu sína, systur og tvær frænkur.

Slagorð herferðarinnar er að þú getir verið glæsileg með smokey förðun á hvaða aldri sem er og það fari öllum konum vel. 

Hægt er að fylgjast með Charlotte á instagram síðu hennar hér en meðal viðskiptavina hennar eru stjörnur á borð við Rihanna, Sienna Miller og Amal Clooney. 

 






×