Fótbolti

Fékk að passa íbúð landsliðsframherjans

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Íbúð Berg er glæsileg og komust félagarnir 10 vel fyrir í sófanum.
Íbúð Berg er glæsileg og komust félagarnir 10 vel fyrir í sófanum. vísir/samsett mynd/expressen/getty
Jesper Bergkvist fékk að upplifa draum margra og lifa sem atvinnumaður í fótbolta í nokkra daga. Hann vann keppni á samfélagsmiðlum og passar hús Marcus Berg á meðan á HM stendur.

Sænski framherjinn Berg ákvað að setja upp keppni á samfélagsmiðlum þar sem verðlaunin voru að passa upp á íbúðina hans á meðan riðlakeppni HM stæði yfir þar sem Svíar eru í F riðli ásamt Suður-Kóreu, Þýskalandi og Mexíkó.

Íbúð Berg er þó ekki risavaxið glæsihús eins og mætti halda heldur tæpir 90 fermetrar í Gautaborg.

Verkefnalistinn frá Bergmynd/expressen
Jesper og vinir hans horfðu á Svía vinna Kóreumenn úr sófa Berg en máttu þó ekki bara liggja í makindum sínum því Berg skildi eftir verkefnalista.

Vökva blómin, skoða borgina og styðja Svíþjóð.



Jesper og félagar vökvuðu blóm Berg með glöðu geði og kláruðu restina af verkefnunum með sæmd.



„Þetta er nokkuð svalt. Það er töfrum líkast að búa hér og erfitt að lýsa því,“ sagði Jesper við Expressen.



Jesper var þó ekkert of ánægður með frammistöðu gestgjafans í leiknum gegn Kóreu, þar vildi hann að Berg hefði sett að minnsta kosti eitt mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×