Heilsa

Fegurðarsamkeppnir fyrir píkur

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Ekki er öll vitleysan eins.

Í sumar efndi kynlífstækjaframleiðandi til píkufegurðarsamkeppni.

Keppnin fór fram á netinu og áttu píkur heims að taka mynd af sér og senda inn í samkeppnina með #autoblowvaginabeuatycontest skrifað einhver staðar á myndina. Margar voru mjög sniðugar í þessari merkingu og skrifuðu það á lítinn miða og límdu yfir rassinn á sér.

Það hefði kannski átt að veita aukaverðlaun fyrir frumleika í staðsetningu miðans en svo virðist sem engum hafi dottið í hug að nota bara post-it sem er með líminu á. Kannski bara í næstu keppni.

Markmiðið með þessari keppni var ekki fagna fjölbreytileika heldur að gefa kynlífstækjaframleiðanda tækifæri á að velja píku sem flestir karlar álitu fallegasta (nú eða girnilegasta) svo hann gæti prenta hana út í þrívídd og selt sem kynlífstæki.

Vísir/Getty
Fyrrgreindur framleiðandi sagðist sjálfur kjósa píku með stórum börmum en hann var ekki viss hvort aðrir deildu hans smekk, sérstaklega í ljósi einleits útlits kynfæra í kynlífstækjabransanum (og reyndar oftar en ekki í mörgum klámmyndum).

Afraksturinn má sjá hér. Ef þú smellir á hlekkinn þá sérðu píkur.

Sumar eru á hvolfi, sumar eru með andliti, á sumum sést í rassinn og sumar eru skreyttar en allar eru þær hárlausar.

Það var nefnilega skilyrði að vera hárlaus því annars gat prentarinn stíflast, segir aðstandandi keppninnar.

Ef þig langar að rýna í niðurstöður þessarar keppni á ögn vísindalegri nótunum þá var tekin saman lýsandi tölfræði og má skoða hana og rýna í löndin sem tóku þátt og meðallengd barma, svo fátt eitt sé nefnt.

Dæmi nú hver fyrir sig en líkt og í flestum fegurðarsamkeppnum var útlitið nokkuð einsleitt og byggt á ákveðinni markaðsforskrift.


Tengdar fréttir

Ímyndarherferð píkunnar

Ég sá píkuna í nýju ljósi um daginn. Það var ekki svo að ég hefði spennt hana upp með goggi og stungið inn vasaljósi (þó vissulega sé það hugmynd fyrir áhugasama um leggöng). Ég sá hana í súkkulaðilíki. Í öllu sínu veldi sem smartan og girnilegan konfektmola. Við það að sjá hana svona tignarlega þá kviknaði hjá mér hugmynd.

Píkuskrímslin

Misjöfn viðbrögð unglinga við kynfræðslu.

Píka eða budda, pjalla eða klobbi?

Í opnu bréfi til bókaútgáfunnar Óðinsauga sem birtist á vefiritinu knuz.is er orðanotkun í barnabókum gagnrýnd.

Ein píka, tvö leggöng?

Hér er saga kvenna sem komust að því að þær væru með tvö leggöng og tvö leg!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×