Tíska og hönnun

Fegurð kemur í öllum stærðum og gerðum

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
Maria segir of margar stúlkur hafa áhyggjur af vaxtarlagi sínu. Hún vill hætta að flokka konur eftir stærðum.
Maria segir of margar stúlkur hafa áhyggjur af vaxtarlagi sínu. Hún vill hætta að flokka konur eftir stærðum. fréttablaðið/Daníel
„Þetta er alveg frábært tækifæri fyrir mig og ég er ofboðslega ánægð,“ segir fyrirsætan Maria del Carmen Jimenez Pacifico, en Maria gerði samning við módelskrifstofuna Volúme Model Management í gær.

Skrifstofan gerir einungis samning við stúlkur í svokölluðum yfirstærðum en það eru stærðir frá 40-48. Maria segir að módelskrifstofan hafi haft samband við sig að fyrra bragði í gegnum aðdáendasíðu sína á Facebook, en þetta var ekki eina stofan sem hafði áhuga.

„Það voru fleiri skrifstofur á eftir mér, þar á meðal önnur frá Danmörku, en ég hafði ekki tíma til þess að fara út í viðtöl enda á kafi í skólanum,“ segir Maria, sem stundar nám í leiklist og kvikmyndagerð við Kvikmyndaskóla Íslands.

Maria flutti hingað til lands frá Kólumbíu fyrir níu árum, en hún á íslenskan stjúpföður.

Hún segir allt of margar stelpur hafa áhyggjur af vaxtarlagi sínu.

„Fegurð kemur í öllum stærðum og gerðum. Það er kominn tími til þess að hætta að flokka eftir stærð og stereótýpum. Stelpur eiga að vera ánægðar í eigin skinni,“ segir Maria.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×