Sport

Feðgar keppa um gullið á meistaramóti TSÍ

Feðgarnir Rafn Kumar Bonifacius og Raj K. Bonifacius.
Feðgarnir Rafn Kumar Bonifacius og Raj K. Bonifacius. Mynd/Tennissamband Íslands
Feðgarnir Rafn Kumar Bonifacius og Raj K. Bonifacius tryggðu sér í gær sæti í úrslitaleik Meistaramóts Tennissambands Íslands en þeir munu spila um gullið á laugardaginn.

Feðgarnir keppa reyndar ekki fyrir sama félag því pabbinn Raj K. Bonifacius keppir fyrir Víking en sonurinn Rafn Kumar Bonifacius fyrir Hafna- og Mjúkboltafélag Reykjavíkur.

Raj K. vann Magnús Gunnarsson úr TFK í sínum undanúrslitaleik en Rafn Kumar hafði betur á móti Vladimir Ristic úr TFK.

Úrslitaleikur feðganna fer fram í Tennishöllinni í Kópavogi á laugardagskvöldið. Leikurinn um þriðja sætið hefst klukkan 18.30 og úrslitaleikurinn síðan strax á eftir.  

Í kvennaflokki mætast þær Hjördís Rósa Guðmundsdóttir (Badmintonfélag Hafnarfjörður) og Hera Björk Brynjarsdóttir (Fjölni) í úrslitaleiknum. Hjördís Rósa sló út Sofiu Sóleyju Jónasdóttur úr TFK og Hera Björk sló út Önnu Soffíu Grönholm úr TFK.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×