Sport

Federer vann átjánda risatitilinn gegn Nadal

Kristinn Pall Teitsson skrifar
Federer sáttur með sigurverðlaunin í Melbourne.
Federer sáttur með sigurverðlaunin í Melbourne. Vísir/Getty
Roger Federer hafði betur gegn spænska tenniskappanum Rafa Nadal í úrslitaleik Opna ástralska meistaramótsins í tennis en Federer hafði betur í oddalotunni 6-3 og tryggði sér með því átjánda risatitilinn í tennis.

Þetta var í fyrsta skiptið sem Federer hafði betur gegn Nadal í þessu sögufræga móti á Melbourne Park en Federer er nýkominn af stað á ný eftir aðgerð á hné.

Federer og Nadal skiptust á sitt hvorri lotunni til að byrja með og þurfti því oddalotu til að útkljá sigurvegarann.

Eftir rúmlega þrjá og hálfan tíma hafði Federer betur í oddalotunni.

Nadal sem er einnig að ná sér af meiðslum sýndi gamalkunna takta en náði ekki að halda í við Federer og vinna sinn fimmtánda risatitil í tennis.

Var þetta í þriðja skiptið í röð sem Nadal tapar í úrslitum í einliðaleik í Melbourne en eini sigur Nadal á Opna ástralska kom gegn Federer 2009.

Er þetta í fyrsta sinn síðan 2012 sem Federer stendur uppi sem sigurvegari á stórmóti í tennis en hann hefur nú unnið átján risatitla á ferlinum, fjórum titlum meira en Pete Sampras og Rafa Nadal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×