Sport

Federer: Munum alltaf vera andstæðingar

Dagur Lárusson skrifar
Nadal og Federer í gær
Nadal og Federer í gær Vísir/getty
Rafael Nadal og Roger Federer spiluðu saman í fyrsta sinn í tvíliðaleik í Laverbikarnum í Prag í gær.

Báðir sögðu þeir að að það væri heiður að fá að spila saman en þeir munu þó alltaf verið andstæðingar en þeir eiga samtals 35 bikara á milli sín.

„Við munum alltaf vera andstæðingar, svo lengi sem við erum að spila og eftir þetta munum við vera andstæðingar á ný.“

„Þetta var samt sem áður mjög sérstök stund. Vitandi það að ég gæti treyst honum inná velinum og sjá ákvarðanatökuna hans var mjög athyglisvert,“ sagði Federer

Rafael Nadal tók í sama streng og Federer og sagði það heiður að deila vellinum með Federer.

„Þetta var ógleymanleg stund, það að fá að spila hlið við hlið með Roger Federer var algjör heiður, eitthvað sem ég hef viljað gera alla ævi og í dag gerðist það,“ sagði Nadal


Tengdar fréttir

Nadal og Federer unnu í tvíliðaleik

Tennisstórstjörnurnar Roger Federer og Rafael Nadal spiluðu saman í tvíliðaleik í fyrsta skipti í Laverbikarnum í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×