Golf

Fed-Ex bikarinn hefst í kvöld - Heldur McIlroy uppteknum hætti?

Rory McIlroy hefur leikið frábærlega undanfarnar vikur.
Rory McIlroy hefur leikið frábærlega undanfarnar vikur. AP/Getty
Spennustigið á PGA-mótaröðinni mun aukast gífurlega á komandi vikum en fyrsta mótið í Fed-Ex bikarnum, Barclays meistaramótið, hefst í dag á Ridgewood vellinum.

Þeir 125 kylfingar sem hafa safnað sér flestum Fed-Ex stigum yfir tímabilið á PGA-mótaröðinni hafa þátttökurétt um helgina og því eru nánast allir bestu kylfingar heims skráðir til leiks. Í komandi mótum mun þeim síðan fækka jafnt og þétt en aðeins 30 kylfingar fá að taka þátt í lokamótinu sem fram fer á hinum magnaða East lake velli um miðjan september.

Verðlaunaféð í Fed-Ex bikarnum er gífurlega hátt en alls er spilað um 35 milljónir dollara eða rúmlega fjóra milljarða króna. Til að setja þetta í samhengi fær sá kylfingur sem endar í 91. sæti á Fed-Ex stigalistanum 80.000 dollara í sinn hlut eða rúmlega 9.3 milljónir króna á meðan að sigurvegarinn fær heilar 10 milljónir dollara eða 1.1 milljarð íslenskra króna.

Svíinn Henrik Stenson sigraði Fed-Ex bikarinn í fyrra en Rory McIlroy leiðir stigalistann þetta árið. Það verður áhugavert að sjá hvort að eitthvað stöðvar Norður-Írann unga en hann hefur á undanförnum vikum spilað ótrúlegt golf og unnið tvo risatitla ásamt því að hafa sigrað á Bridgestone heimsmótinu í golfi.

Barclays meistaramótið verður sýnt í beinni útsendingu á Golfstöðinni og hefst útsending frá fyrsta hring klukkan 18:00 í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×