Lífið

Febrúarspá Siggu Kling – Naut: Verður eins og mannýgt naut!

Elsku nautnafulla nautið mitt. Þú ert að fara inn í merkilega tíma þar sem þú munt reyna mikið á þig.

Þú skorar á þig á margskonar máta, kemst í stríðsástand og verður eins og mannýgt naut. Það er eitthvað svo mikilfenglegt og þú finnur spennuna og færð nennuna sem oft hefur ekki verið til staðar.

Tilbúin í slagin er yfirskriftin yfir þetta tímabil. Þú gætir farið í forsetaframboð ef þú bara nennir því! Svo er gott að dekra við athylisgleðina og láta bara vað,a þú þarft ekki að hugsa núna eða aldrei heldur miklu frekar NÚNA eða NÚNA.

Það sem hræðir þig mest er að snúast upp í andhverfu sína. Ekki vorkenna þér í eitt augnablik því í vorkunn er meinsemd sem gerir þig veikt og eitrar hugann. Fókuseraður á frasana ég get þetta, þetta verður ekkert mál og svo framvegis.

Það kemur fyrir að þú særir fólk þó þú meinir ekkert með því. Best er að bíta bara í tunguna þó þú viljir láta einhver heyra hvað þú ert með góð spil á hendi hreinlega fullt hús stiga. Settu bara upp pókerandlitið því þú tekur lukkupottinn.

Knús og koss, þín Sigga Kling

Fræg naut: Svali Kaldalóns fjölmiðlamógúll, Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, rithöfundur og latikokkur, Ellý Ármanns fjölmiðlakona, Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri, Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður, Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Álfheiður Ingadóttir þingkona, Halldór Laxness, rithöfundur og skáld, Rúnar Freyr Gíslason leikari, Garðar Thor Cortes söngvari, Helga Möller söngkona, Katrín Tanja Davíðsdóttir crossfit-meistari, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngkona, Pétur Jóhann Sigfússon, Addi Exos dj. snillingur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×