Lífið

Febrúarspá Siggu Kling – Bogmaðurinn: Svolítill titringur í ástarsambandi

Elsku bogmaður, þú ert að fara inn í tímabil, þar sem þú ert að vígbúast, klæða þig í bardagafötin og ná þér í flotta bogann þinn. Þú átt eftir að hafa allt tilbúið ef einhver ætlar svo mikið sem ýta við þér, þú hefur skynjun eins og kötturinn.

Þú finnur á þér hvort það er eitthvað erfitt að koma eða hvernig þú eigi að bregðast við aðstæðunum. Þetta er ógnarhraður tími - febrúar og mars - og gefa þeir frá sér eldglæringar líkt og þegar Ferrari fer í spyrnu við Skóda. Í þessu umstangi og mikla krafti finnur þú að sjálfssögðu fyrir öllum tilfinningum.

Ekki hafa áhyggjur af því í eina mínútu, það er eins og sé verið að telja niður í áramótin og spennan eykst. Flutningar, eða breytingar á högum eru sterkt inni í kortinu þínu þessa þrjá mánuði. Tilboð sem krefjast af þér mikillar athygli eru líka á borðinu. Í allri þessari spennu verða þeir sem eru á lausu svolítið graðir í ástina og það er um að gera, að nýta sér þessa tíðni til þess að fanga athygli þeirra manneskju sem þú nennir að kúra með og horfa á Notebook.

Það er svolítill titringur í ástarsambandi hjá þeim sem eru saman. Og er alveg nauðsynlegt að gefa ástinni meiri tíma heldur en hefur verið gert undanfarið. Ef allt er í lagi þá hefur þú gert það sem þú getur. Ef þér finnst að þú hafir ekki nógu mikið flæði í peningamálum, þá þarft þú að skoða aðeins betur og nenna því að vaða í gegnum fjallið. Þú ert með réttu lausnina - hvernig þú átt að fara að því að hala betur inn, og eina sem þú þarft að gera er bara að nenna því.

En þegar þú elskan mín bítur eitthvað í þig þá brotna fjöllin niður. Svo mikill getur kraftur þinn verið.

Mottó – ég kem sé og sigra, væri dásamlegt mottó fyrir þig

Frægir Bogmenn: Ingvar E. Sigurðsson leikari, Björgvin Franz Gíslason leikari, Edda Heiðrún Backman leikkona, Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona, Sigrún í Gyðja Collection, Steindi, Bryndís Ásmundsdóttir, leik- og söngkona, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, fjallkona og leikkona, Logi Bergmann Eiðsson sjónvarpsmaður, Jói á Fabrikkunni, Sigga Dögg kynfræðingur, Hemmi, hársnillingur á Módus, Lovísa, hönnuður hjá Kjólar og konfekt.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×