Lífið

FBI kannar hvort Brad Pitt hafi misþyrmt börnunum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eitt stærsta skilnaðarmálið í Hollywood heldur áfram.
Eitt stærsta skilnaðarmálið í Hollywood heldur áfram. vísir/getty
Lögreglan í Los Angeles staðfesti í gær að hún er ekki að rannsaka leikarann Brad Pitt vegna gruns um að hann hafi beitt börn sín líkamlegu ofbeldi. Vísir greindi frá því en nú er það komið í ljós að FBI er með málið til rannsóknar. Þetta staðfestir talsmaður FBI í samtali við tímaritið People.

„FBI er núna að taka saman gögn og í framhaldinu verður ákveðið  hvort nánari rannsókn fari fram,“ segir í yfirlýsingu frá Alríkislögreglu Bandaríkjanna.

Greint var frá því á vef TMZ í gær að Pitt væri sakaður um að hafa misþyrmt börnunum sínum með því að hafa öskrað ítrekað á þau og einnig beitt þau líkamlegu ofbeldi. Átti þetta að vera ástæðan fyrir því að Angelina Jolie sótti um skilnað frá Pitt en í samtali við Hollywood Reporter í dag sagði Barry Montgomery hjá lögreglunni í LA að engin rannsókn væri í gangi sem snertir Pitt.

Í frétt TMZ í gær kom fram að á miðvikudaginn í seinustu viku hafi Pitt verið mjög ölvaður umborð í einkaþotu og gengið þar berserksgang. Þar hafi hann öskrað og veist að börnunum sínum. Þegar vélinni var lent hélt Pitt hegðun sinni áfram og að það hafi verið kornið sem fyllti mælinn hjá Jolie. Þá var sagt að lögreglan í LA væri komin með málið á sitt borð en svo virðist ekki vera.

Angilina Jolie sótti um skilnað frá eiginmanni sínum Brad Pitt á mánudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×