Íslenski boltinn

Fáum undanúrslitaleik á heimavelli í fyrsta sinn í 17 ár

Tómas Þór Þórðarsson skrifar
Símun Samuelsen og Davíð Þór Rúnarsson eigast við í undanúrslitaleiknum 2006.
Símun Samuelsen og Davíð Þór Rúnarsson eigast við í undanúrslitaleiknum 2006. Fréttablaðið/Anton
„Við þurfum ekki að hefna fyrir eitt né neitt,“ segir Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, við Fréttablaðið um undanúrslitaleikinn gegn Víkingi í Borgunarbikarnum í kvöld.

Víkingur vann fyrri deildarleik liðanna, 3-1, en Kristján segir: „Deildin er allt önnur keppni, en auðvitað höfum við áhuga á að komast í úrslitaleikinn.“

Hann bætir við: „Við erum með nokkra leikmenn í okkar liði sem hafa spilað úrslitaleik og unnið hann. Og nú fáum við undanúrslitaleik í Keflavík í fyrsta skipti í 17 ár.“

Sömu lið fyrir átta árum

Keflavík og Víkingur áttust við í undanúrslitum bikarkeppninnar sumarið 2006. Þó gengi beggja liða sé svipað nú og þá, Víkingur reyndar fyrir ofan Keflavík í deildinni – annað en fyrir átta árum, þá eru aðeins þrír leikmenn eftir sem spiluðu leikinn í flóðljósunum á Laugardalsvellinum.

Ingvar Kale varði mark Víkings, en fékk á sig fjögur mörk gegn virkilega vel mönnuðu liði Keflavíkur. Það hafði innanborðs spilara á borð við Baldur Sigurðsson, Jónas Guðna Sævarsson, Hólmar Örn Rúnarsson og Símun Eiler Samuelsen.

Hjá Keflavík eru eftir þeir Einar Orri Einarsson og Magnús Sverrir Þorsteinsson sem báðir komu inn á í 4-0 sigrinum fyrir átta árum í Laugardalnum.

„Ég hef í rauninni ekkert pælt of mikið í þessu. Það hittist bara þannig á að þessi lið spila núna aftur undanúrslitaleik. Bæði lið voru um miðja deild þá og börðust um að spila við KR í úrslitum. Nú geta liðin einnig mætt KR í úrslitum. Þetta er athyglisvert, en vissulega allt annað dæmi í gangi,“ segir Kristján.

Nýtum tækifærið

Keflavík steinlá í Víkinni þegar liðin mættust fyrr í mánuðinum og Kristján veit hvað hans menn þurfa að laga frá síðasta leik.

„Við þurfum að halda boltanum betur og uppspilið þarf að vera betra. Víkingar eru góðir í að vinna seinni boltann þannig við þurfum að vera sterkir í því. Við komumst í ágætis gír í síðasta leik gegn Val í seinni hálfleik en töpum. Við erum stundum kannski of gíraðir því við viljum svo vinna leikina á heimavelli,“ segir Kristján, sem hvetur sitt fólk til að fjölmenna.

„Við vitum að Víkingarnir fjölmenna þannig það er um að gera fyrir Keflvíkinga að nýta þetta tækifæri og mæta á fyrsta undanúrslitaleik í bikar sem spilaður er í Keflavík síðan 1997. Það fór vel þá þannig að nú er bara að lengja verslunarmannahelgina um einn dag,“ segir Kristján Guðmundsson.

Leikurinn hefst klukkan 19.15 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Úr leik Víkings og Keflavíkur á dögunum.Vísir/Arnþór



Fleiri fréttir

Sjá meira


×