Innlent

Fatlaðir látnir rúnta um bæinn í hagræðingarskyni

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar
Barbara Ármannsdóttir, móðir Guggu Jónu Jónsdóttur sem þarf að reiða sig á þjónustuna, segir í viðtali við Stöð 2 að þetta virðist vera tóm endaleysa.
Barbara Ármannsdóttir, móðir Guggu Jónu Jónsdóttur sem þarf að reiða sig á þjónustuna, segir í viðtali við Stöð 2 að þetta virðist vera tóm endaleysa. Mynd/Stöð 2
Ferðaþjónusta fyrir fatlaða í borginni er í ólestri eftir að strætó tók við rekstrinum og breytti fyrirkomulaginu. Ferð til læknis, sálfræðings, í verslun eða á námskeið, sem á að taka tíu mínútur hvora leið, getur tekið marga klukkutíma þegar allt er talið.

Barbara Ármannsdóttir, móðir Guggu Jónu Jónsdóttur sem þarf að reiða sig á þjónustuna, segir í viðtali við Stöð 2 að þetta virðist vera tóm endaleysa. Tímasetningar standast ekki og endalausar tafir. Fólki sé safnað í bíla og það keyrt bæjarenda á milli, þótt það sé að fara stutta vegalengd. Gugga Jóna hafi orðið of sein í sjúkraþjálfun vegna þessa og í eitt skipti þurfti hún að bíða í klukkustund í Smáralind eftir því að vera sótt. Til allrar hamingju var hún ekki ein á ferð. Móðir hennar segir að það hefði getað farið verr, þar sem Gugga Jóna á erfitt með að tjá sig, ef vinkona hennar hefði ekki hringt og látið vita.

Forstöðumenn sambýla sem Stöð 2 ræddi við segja að dagurinn fari nú að stóru leyti í að skipuleggja ferðir með ferðaþjónustu strætó. Á annan tug bílstjóra annast aksturinn í verktökum fyrir Strætó en fjórir hafa hætt vegna skipulagsvandans. Notendur þjónustunnar voru ekki látnir vita um breytingarnar og klúðrið kom þeim í opna skjöldu.

Lovísa Guðbrandsdóttir þroskaþjálfi segir við Stöð 2 að fólki sé sýnd lítilsvirðing með því að láta það ekki vita um breytingarnar. Það sé að missa af heimsóknum til lækna, sálfræðinga og tímum í tónlist eða fjölmennt sem það hafi greitt fyrir en getur ekki sótt vegna þessa. Lovísa segir að kvörtunum sé svarað með því að segja að einkabílaþjónusta sé ekki lengur í boði. Þá sé hægt  að fá sms í síma eða notast við app í snjallsímum. Gallinn sé sá að stór hluti notenda þjónustunnar eigi ekki slíka síma. Þeir þurfi að gera ráð fyrir hálftíma bið eftir þjónustunni vegna þess. Í ofanálág þurfi þeir svo að rúnta ansi hressilega um bæinn til þess að komast á leiðarenda.
 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×