Innlent

Fatlaðir komist líka á klósett á hátíðum

Ingvar Haraldsson skrifar
Ellen bendir á að kamrar fyrir hreyfihamlaða þurfi að vera rúmgóðir, með armstuðning og lítinn hæðarmun frá gólfi.
Ellen bendir á að kamrar fyrir hreyfihamlaða þurfi að vera rúmgóðir, með armstuðning og lítinn hæðarmun frá gólfi. fréttablaðið/amdri marínó
„Ég verð nú bara að vera alveg hreinskilinn og spyrja – eru svona hátíðir fyrir alla eða fyrir suma?“ segir Bergur Benjamínsson, varaformaður Sjálfsbjargar, um þá salernisaðstöðu sem hreyfihömluðum er oftar en ekki boðið upp á á bæjarátíðum á Íslandi.

Bergur segir allt of algengt að ekki sé hugsað út í að fatlaðir hátíðargestir þurfi líka að fara á salernið. „Menn einhvern veginn búast ekki við að fatlað fólk sé að sækja slíkar hátíðir,“ segir Bergur.

Bergur Benjamínsson
Í hans huga ætti að vera einfalt mál að leysa vandann. „Ef þú þarft að bóka Stuðmenn þarft þú líka að bóka stóran kamar. Þetta á bara að vera á listanum yfir það sem þarf að gera,“ segir Bergur. 

Fötluðum líði oftar en ekki eins og þeir séu skildir út undan þegar engin salernisaðstaða sé til staðar fyrir þá. „Það er þessi tilfinning sem enginn vill upplifa – að vera óvelkominn sem maður upplifir því miður – þegar maður lendir í einhverju svona. Það er rosalega leiðinlegt, það verður bara að segjast alveg eins og er,“ segir Bergur.

Ellen Calmon
Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalags Íslands, segir að málið snúist um mannréttindi.

„Þetta er spurning um að allir séu við sama borð settir,“ segir hún. Ellen segir allt of algengt að fatlaðir þurfi að fara inn á nærliggjandi veitingastaði og biðja um leyfi til að fara á salernið.

„Þetta er partur af því að fatlað fólk sæki sína þjónustu á sama stað og allir aðrir. Ef það eru almenningssalerni eiga það að vera salerni fyrir alla, ekki suma,“ segir Ellen. 

Ellen bendir á að hreyfihamlaðir geti ekki notað hvaða salerni sem er. Þeir þurfi að hafa nægt gólfrými fyrir hjólastól, armstuðning og lítinn hæðarmun frá gólfi. 

Öryrkjabandalag Íslands hefur sent bréf á öll sveitarfélög landsins þar sem brýnt er fyrir skipuleggjendum hátíða að tekið sé tillit til þarfa fatlaðs fólks þegar færanlegum salernum sé komið fyrir. „Sú hefur því miður ekki alltaf verið raunin,“ segir í bréfinu. 

Engin svör hafa enn borist við bréfinu að sögn Ellenar en Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, hafi tekið jákvætt í beiðni hennar og sagt að málið yrði tekið til skoðunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×