Lífið samstarf

Fatlað fólk á rétt á upplýsingum að eigin vali

KYNNING: Öryrkjabandalag Íslands skorar þessa dagana á íslensk stjórnvöld að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, eigi síðar en á haustþingi 2015.

Samningurinn er leiðarvísir að því hvernig tryggja skal fötluðu fólki mannréttindi og tækifæri til jafns við aðra í lífinu og gera því þannig kleift að vera virkir þátttakendur í samfélaginu. 151 land hefur fullgilt samninginn. Einungis fjögur Evrópulönd eiga eftir að fullgilda hann, Finnland, Írland, Holland og Ísland.

Lesendur er hvattir til að skrifa undir áskorun til stjórnvalda á síðunni obi.is/askorun.

Öryrkjabandalagið hefur látið gera myndbönd til að styðja við áskorunina og fjallar myndbandið hér að ofan um upplýsingar.

Upplýsingar

Í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólk segir:

Fatlað fólk á rétt á upplýsingum að eigin vali, t.a.m.eins og t.d sjónlýsingum, táknmálstúlkun og upplýsinga- og samskiptatækni á aðgengilegu formi.

Samfélagið gerir hins vegar ráð fyrir því að allir séu sjáandi og upplýsingar því settar fram á sjónrænan hátt og ekki útskýrðar frekar.


Tengdar fréttir

Skrifum undir mannréttindi fatlaðs fólks

Öryrkjabandalag Íslands heldur áfram herferð sinni til að tryggja fötluðu fólki mannréttindi til jafns við aðra í samfélaginu. Herferðin er í formi undirskriftasöfnunar þar sem skorað er á stjórnvöld að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks






Fleiri fréttir

Sjá meira


×