Tíska og hönnun

Fataskápurinn: Bóas Kristjánsson

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Bóas Kristjánsson fatahönnuður
Bóas Kristjánsson fatahönnuður
Bóas Kristjánsson fatahönnuður rekur sitt eigið hönnunarfyrirtæki, 8045, sem er í miklum vexti. 

„Stíllinn minn er minímalískur og dökkur, ég reyni að velja mér „functional“ klæðnað. Kringumstæðurnar sem maður er í á hverjum degi geta verið mjög ólíkar og með ólíku fólki. Þess vegna finnst mér dökkt og einfalt henta vel. Ég vil helst geta farið á Prikið, í matarboð og síðan á klúbb án þess að þurfa að pæla í hvort það sem ég er í virkar eða ekki.“

Nytsamlegasta flík sem ég hef gert. Hef gengið í einhvers konar útgáfu af þessu á hverjum degi í fimm ár. Gæti ekki verið án hennar.

Besta flík sem ég hef hannað. Úr fyrstu línunni minni. Hreindýraleður og þæft prjónaefni. Japönsk „inspiration“.

Uppáhaldsflíkin mín. Biker-jakki úr laxaroði. Gataður og hálf-fóðraður. Líka vor 2014.

Elska þennan regnjakka. Líka úr vor 2014. Keypti þetta efni til að prenta á það en fannst fílingurinn í að hafa hvítt hálfgagnsætt bara svo skemmtilegur.

Hörskyrta úr vor 2014 línunni minni. Mikill sniðapervertismi. Raglanaxlir eins og á regnjakkanum. Síð að framan fyrir „layering effect“. Hægt að hneppa í kvartsídd. Hentar fyrir akademíkerinn jafnt sem plötusnúðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×