Lífið

Fatahönnuðir með fatamarkað

Hildur Yeoman
Hildur Yeoman Vísir
Fatahönnuðirnir Katrín Alda, Hildur Yeoman, Rebekka Jónsdóttir, Eygló Lárusdóttir, Rannveig Kristjánsdóttir og Sævar Markús halda fatamarkað á Lofti Hosteli í dag.

Eru þau mikið smekkfólk og ættu allir að finna eitthvað milli klukkan 11 og 17 í dag.

Mælt er með að mæta snemma þar sem í boði verður bæði notuð og ónotuð merkjavara, ásamt sýnishornum frá KALDA, REY, Hildi Yeoman og EYGLO.

Einnig verða töskur, skór, skart og tískubækur til sölu og einungis verður tekið við peningum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×