Innlent

Fátækar fjölskyldur á Suðurnesjum: „Sumir halda náttfatajól því það eru ekki til spariföt“

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
73 fjölskyldur af Suðurnesjum þáðu matar- og jólagjafir frá Velferðarsjóði Suðurnesja og Hjálparstarfi kirkjunnar til að geta haldið gleðiðleg jól.

Úthlutunin fór fram á fimmtudag. Hver fjölskylda fær inneign í matvöruverslun og allir fá jólagjöf sem góðgerðarfélagið Litlu hjörtun hefur séð um að safna fyrir og kaupa.

„Við erum rík í þessu samfélagi þegar svo margir hugsa um þá sem minna hafa og við gátum gefið góðar gjafir,“ segir Þórunn Þórisdóttir, rekstrarstjóri Keflavíkurkirkju og umsjónarmaður úthlutunarinnar.

Þórunn segir alls konar fólk sækja aðstoð, láglaunafólk, verkafólk, öryrkja og þeir sem hafa orðið undir í lífinu af ýmsum ástæðum.

„Þetta er að megninu til barnafjölskyldur, sumar mjög barnstórar með fimm til sex börn og fólk jafnvel í fullri vinnu en ná bara ekki endum saman.“

Fjöldinn er svipaður og síðustu ár þrátt fyrir betra atvinnuástand á Suðurnesjum.

„Launin eru oft ansi lág. Fólk getur ekki lifað af launum í fullri vinnu en er samt að spara og standa sig vel.“

Þórunn segir fólk finna nýjar leiðir til að halda jól án þess að það kosti of mikið.

„Sumir halda náttfatajól því það eru ekki til spariföt og ekki peningur fyrir sparifötum. Börnunum finnst það bara kósý. Fólk býr sér til sína umgjörð og sinn frið í hjarta,“ segir Þórunn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×