Innlent

Fát kom á nýja forsetann þegar fyrstu tölur voru kynntar

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
„Þetta er einstök tilfinning. Þegar ég hóf baráttuna þá vissi ég að þetta gæti orðið niðurstaðan svo ég var búinn undir hana,“ sagði nýr forseti, Guðni Th. Jóhannesson, í morgunsárið. Guðni tók á móti fjölmiðlamönnum í morgun.

Guðni sagði meðal annars að stóran hluta baráttunnar hafi hann verið með mikið fylgi og hann hafi alltaf grunað að svo gæti farið að hann myndi standa uppi sem sigurvegari. Eftir að nær dróg kjördegi hafi sú niðurstaða sífellt orðið líklegri.

Síðustu daga fyrir kjördag sótti Halla Tómasdóttir mjög að honum og þegar fyrstu tölur voru kynntar í gær, úr Suðurkjördæmi, munaði aðeins um prósenti á þeim.

„Þá kom fát á mig. Ég vissi að Halla hafði sótt mjög á, skiljanlega, og ég sá fyrir mér að munurinn milli okkar yrði ekki eins mikill og kannanir höfðu sýnt. En að það yrði svona hnífjafnt, það hafði ég ekki séð fyrir mér.“

Framundan hjá nýkjörnum forseta eru fleiri viðtöl í dag og hylling forseta fyrir utan heimili hans klukkan 16 í dag. Að henni lokinni fær Guðni „langþráð frí í nokkra klukkutíma“ áður en hann heldur út til Frakklands að horfa á leik Íslands og England í 16-liða úrslitum Evrópumótsins.

Börnin spenntari yfir afmæliskökunni

„Ég er mjög spennt,“ segir forsetafrúin Eliza Reid. „Það hefur verið mjög gaman að ferðast um landið undanfarnar sex vikur og nú hlakka ég til framtíðarinnar og að flytja.“

Eliza og Guðni eiga saman fjögur ung börn en það elsta er fætt árið 2007. Eliza segir að börnin hafi ekki enn áttað sig á því hvað hafi gerst. „Þau eru í raun spenntari fyrir því að í dag er afmælisdagur pabba þeirra. Hér er risastór kaka og hún er meira spennandi forsetaembættið.“

Guðni hyggst undirbúa sig fyrir nýja embættið með því að tala við fólk, hlusta á það og þiggja af því ráð. „Svo ætla ég að leggja línur með sjálfum mér og öðrum. Ég þarf að undirbúa mig fyrir þingkosningarnar í haust þar sem væntanlega verða stjórnarskipti. Það er mikilvægt að sá sem gegnir embættinu hafi tilfinningu hvað sé líklegast að fólk vilji innan þings og utan þess og að hann búi svo um hnútana að slík skipti gangi eins greitt fyrir sig og mögulega er unnt.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×