Handbolti

Fastir liðir eins og venjulega í úrslitakeppni kvenna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Úrvalslið Olís-deildar kvenna. Á myndina vantar Ramune Pekarskyte, leikmann Hauka.
Úrvalslið Olís-deildar kvenna. Á myndina vantar Ramune Pekarskyte, leikmann Hauka. vísir/ernir
Úrslitakeppnir handboltans fara af stað í vikunni og stelpurnar byrja í kvöld þegar allar fjórar viðureignir átta liða úrslitanna fara fram.

Haukar og Grótta börðust um efsta sætið en það munaði síðan bara fjórum stigum á liðunum í næstu fjórum sætum. Það er því spenna fyrir úrslitakeppninni í svona jafnri deild.

Stjarnan og Valur mætast í átta liða úrslitunum og rífa eflaust upp gömul sár eftir rosalegar rimmur undanfarin ár. Þetta verður fimmta árið í röð sem liðin mætast í úrslitakeppninni og undanfarin þrjú ár hefur einvígið unnist í oddaleik. Liðin unnu hvort innbyrðisleikinn sinn í deildinni og það má alveg fara að búa sig undir oddaleikinn.

Fram mætir ÍBV í uppgjöri liðanna í 3. og 6. sæti en fyrir nokkru voru liðin í öfugri stöðu. Eyjakonur hafa hins vegar gefið mikið eftir að undanförnu og misstu frá sér heimavallarréttinn sem gæti reynst þeim dýrkeypt. Framkonur hafa meðbyrinn enda vann Framliðið (6) fjórum fleiri leiki í síðustu sjö umferðunum en ÍBV-liðið (2).

Það búast flestir við að Haukar og Grótta vinni sín einvígi 2-0 á móti tveimur reynslulitlum liðum en þar leynast skeinuhættir andstæðingar.

Deildarmeistarar Hauka mæta Fylki en liðin eiga það sameiginlegt að hafa hvorugt unnið leik í úrslitakeppni undanfarin þrjú ár. Það munar vissulega átta sætum á liðunum en Haukarnir unnu samt báða leikina með aðeins tveimur mörkum. Fylkisliðið fór alla leið í undanúrslit bikarsins í vetur og er sýnd veiði en ekki gefin.

Íslandsmeistarar Gróttu hafa þegar misst deildarmeistaratitilinn til Hauka og bikarinn til Stjörnunnar og fyrsta skrefið í titilvörn þeirra á Íslandsmótinu er að mæta markadrottningunni Hrafnhildi Hönnu Þrastardóttur og félögum í Selfossi. Grótta vann báða innbyrðisleiki liðanna þrátt fyrir að Hrafnhildur skoraði samtals 22 mörk í þeim.

Það er áhyggjuefni fyrir sóknarleik Gróttu að öll hin sjö liðin skoruðu fleiri mörk í deildarkeppninni. Varnarleikur Gróttuliðsins var aftur á móti í sérflokki og það mun alltaf skila liðinu langt í úrslitakeppninni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×