Bíó og sjónvarp

Fassbender gæti leikið Jobs

Michael Fassbender kemur til greina sem Steve Jobs.
Michael Fassbender kemur til greina sem Steve Jobs. Vísir/Getty
Michael Fassbender er nýjasti leikarinn sem er orðaður við hlutverk Steve Jobs, stofnanda Apple, í væntanlegri kvikmynd Dannys Boyle um ævi hans.

Áður hafði Christian Bale verið orðaður við hlutverkið.

Hann hafði lýst yfir áhuga á því en fannst það á endanum ekki henta sér.

Myndin er byggð á handriti Aarons Sorkin (The Social Network) og ævisögunni eftir Walter Isaacson sem kom út 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×