Innlent

Farþegar beðnir um að fylgjast vel með: Fundað um stöðu mála

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Farþegar eru beðnir um að fylgjast vel með tilkynningum frá flugfélögum. Seinkanir gætu orðið veðurs.
Farþegar eru beðnir um að fylgjast vel með tilkynningum frá flugfélögum. Seinkanir gætu orðið veðurs. Vísir/Pjetur
Uppfært 12:08:

Samkvæmt upplýsingum á vef ISAVIA hefur flugi WOW til New York, Baltimore og Toronto verið aflýst. Bæði Icelandair og WOW Air búast við töluverðum seinkunum á flugi til og frá Evrópu seinnipart dags.

Farþegar sem ætla sér að ferðast til útlanda í dag eru beðnir um að fylgjast vel með tilkynningum frá flugfélögum sínum.

„Það eru flugfélögin sem taka ákvörðun um það hvað þau gera. Þau munu senda tilkynningu á sína farþega ef eitthvað breytist,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi ISAVIA, í samtali við Vísi.

„Svo er líka, varðandi reykjanesbrautina, ef hún lokar þá hefur það áhrif ef áhafnir komast ekki. Við biðjum farþega að fylgjast vel með tilkynningum frá sínu flugfélagi.“

Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, tekur í sama streng og biður farþega að fylgjast vel með. 

„Við erum að seinka öllum flugum í dag. Það sem eftir er dagsins. Við vísum á bæði komur fluga frá Evrópu núna síðdegis, það verður seinkun og síðan aftur flugið vestur um haf. Við hvetjum fólk til að fylgjast með sínu flugi. En þetta mun valda röskun. Eitt og eitt flug sem virðist vera á tíma en heilt yfir virðist þetta vera að valda seinkunum og biðjum fólk að fylgjast vel með,“ segir Guðjón í samtali við Vísi.

Svana Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW Air, segir veðrið hafa nokkur áhrif á þeirra leiðakerfi.

„Þetta veður hefur frekar mikil áhrif á okkar leiðakerfi. Það má búast við að það verði smá seinkanir frá Evrópu til Íslands á meðan veðrið gengur yfir. það sama má segja um seinnipartsflugin okkar á meðan veðrið gengur yfir. Við þurftum að fella niður flugið okkar til New York vegna veðurs,“ segir Svana í samtali við Vísi. 

Einar Bárðarson, rekstrarstjóri Reykjavík Excursions segir að margir farþegar sem eigi flug seinnipartinn hafi farið til Keflavíkur með flugrútunni í morgun.

„Við reyndum að halda því í morgun og erum að sjá núna að flugfélögin eru byrjuð að aflýsa þannig að við erum að reyna að vinna með það. Ef vélar eru að fara í loftið þá reynum við að koma fólki á staðinn en reynum að setja hvorki starfsfólk eða farþegum í óþarfa hættu,“ segir Einar í samtali við Vísi.

„Við fylgjumst með vegagerðinni og flugfélögum. Allt þetta hefur áhrif. Við virðum allar lokanir.“

Svipaðar upplýsingar fengust hjá Iceland Excursions en síðast ferð þeirra til Keflavíkur var klukkan 11:30. Þau segja jafnframt að ef Reykjanesbrautinni verður lokað munu engar ferðir vera og unnið er eftir ákveðinni viðbragðs- og öryggisáætlun sem fer alltaf í gang þegar veður eru válynd.

Upplýsingar um komur og brottfarir frá Keflavíkurflugvelli má nálgast á vef ISAVIA.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×