Erlent

Farþegalestir rákust saman

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/afp
Að minnsta kosti tuttugu og fjórir eru látnir og á þriðja tug slasaðir eftir tveggja lesta árekstur á Indlandi í nótt. Lestirnar rákust saman á brú í Madhya Pradesh fylki en alls var á fjórða hundrað um borð í farþegavögnunum tveimur.

Flætt hafði yfir brúna og talið er líklegt að það sé ástæðan fyrir að önnur lestin hafi farið út af sporinu, en málið er nú í rannsókn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×