Viðskipti erlent

Farþegaflugvél fyrir viðskiptajöfra á hraðferð

Samúel Karl Ólason skrifar
Fyrirtækin Aeron og Airbus kynntu nýverið samstarfsverkefni að hljóðfrárri þotu sem flogið getur á milli London og New York á einungis þremur tímum. Vélin getur mest náð tæplega tvö þúsund kílómetra hraða. Verðmiðinn á hverri vél verður líklega rúmlega hundrað milljónir dala, eða um tólf milljarðar króna.

Hefðbundnar farþegaþotur fljúga á um 800 kílómetra hraða.

Í vélinni verða sæti fyrir um tólf manns og er hún ætluð viðskiptajöfrum á hraðferð. Areon vonast til þess að tilraunaflug geti hafist árið 2019.

CNN segir frá því að nokkur fyrirtæki vinni að því að þróa álíka þotur sem einnig er ætlað að fara í framleiðslum í kringum árið 2020.

Hljóðfráar þotur hafa ekki verið notaðar til farþegaflutninga frá því að Brithish Airways hætti notkun Concord þotanna árið 2003. Í henni tók flug milli London og New York þrjár og hálfa klukkustund.

Mynd/aerionsupersonic.com





Fleiri fréttir

Sjá meira


×