Innlent

Farsímum stolið í gríð og erg á skemmtistöðum borgarinnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Um síðustu helgi voru það allt konur, sem urðu fyrir barðinu á farsímaþjófum.
Um síðustu helgi voru það allt konur, sem urðu fyrir barðinu á farsímaþjófum. Vísir/Getty
Hátt í tuttugu farsímum var stolið af gestum skemmtistaða í miðborginni um síðustu helgi.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að hún vill ítreka þau varnaðarorð til gesta á skemmtistöðum að vera alveg sérstaklega á varðbergi hvað þetta snertir.

Fólk er jafnframt hvatt til hafa handtöskur lokaðar og geyma ekki síma sína á borðum eða glámbekk þar sem óprúttnir aðilar geta nálgast þá.

Lögreglan hvetur einnig veitingamenn til að halda vöku sinni, gera viðeigandi ráðstafanir ef grunur vaknar um óvandaða aðila á ferð og stuðla þannig að fækkun þessara þjófnaða.

Um síðustu helgi voru það allt konur, sem urðu fyrir barðinu á farsímaþjófum, en hvort um tilviljun var að ræða skal ósagt látið.

Farsímaþjófnuðum hefur annars fækkað í miðborg Reykjavíkur á þessu ári í samanburði við sama tímabil árið 2013.

Á síðasta ári hafði farsímaþjófnuðum hins vegar fjölgað mjög mikið í miðborginni frá árinu 2010, eða úr 88 í 384 árið 2013. Margir þessara þjófnaða áttu sér stað á skemmtistöðum í miðborginni, en það sem af er árinu 2014 hafa lögreglu borist rúmlega 200 tilkynningar um farsímaþjófnaði á þessu svæði.

Áfram stefnir því í fækkun þessara brota á milli ára, en farsímaþjófnaðir síðustu helgar sýna hins vegar að fólk verður stöðugt að halda vöku sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×