Innlent

Farið fram á gæsluvarðhald yfir meintum árásarmanni

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Nokkur vitni hafa verið yfirheyrð vegna málsins.
Nokkur vitni hafa verið yfirheyrð vegna málsins. Vísir/GVA
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu farið fram á gæsluvarðhald yfir karlmanni sem grunaður er um að hafa stungið annan mann með hníf í bakið. Maðurinn var leiddur fyrir dómara á sjötta tímanum í kvöld, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Meintur árásarmaður er á þrítugsaldri og er hann grunaður um að hafa stungið félaga sinn við stúdentagarðana á Sæmundargötu. Maðurinn sem fyrir árásinni varð liggur þungt haldinn í öndunarvél á gjörgæsludeild.

Skýrslutökur eru hafnar vegna málsins og nokkur vitni að árásinni verið yfirheyrð.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×