Innlent

Farið fram á að dómari víki sæti í umfangsmiklu skattsvikamáli

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Aðalmeðferð málsins hefur verið frestað þar til úrskurður Hæstaréttar liggur fyrir.
Aðalmeðferð málsins hefur verið frestað þar til úrskurður Hæstaréttar liggur fyrir. vísir/eyþór
Farið var fram á að einn þriggja dómara í umfangsmiklu skattsvikamáli víki sæti í málinu við aðalmeðferð þess í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Taldi verjandi eins sakborningsins að dómarinn hefði brotið gegn lögum með því að heimila lögreglustjóra að hlusta á og hljóðrita síma skjólstæðings síns. Aðalmeðferðinni var frestað af þeim sökum.

Maðurinn sem um ræðir gegnir lykilhlutverki í málinu en hann var starfsmaður ríkisskattstjóra þegar meint brot áttu sér stað. Alls eru átta einstaklingar grunaðir um stórfelld skattalagabrot með því að hafa svikið allt að 300 milljónir króna af hinu opinbera.

Verjandinn, Björgvin Þorsteinsson, sagði að á grundvelli úrskurðar dómarans, um að heimila símhlustun, hafi mögulega fengist gögn sem gætu ráðið úrslitum í málinu. Dómari hafi gerst uppvís af mannréttindabrotum með því að taka sæti í dómnum.

Dómurinn hafnaði kröfu Björgvins. Björgvin ákvað hins vegar að kæra úrskurðinn til Hæstaréttar og var aðalmeðferð málsins þar af leiðandi frestað um tíma. Verjendur annarra sakborninga voru afar ósáttir við kröfu Björgvins enda eru tæp sex ár frá því að rannsókn á málinu hófst, og ekki er gert ráð fyrir að aðalmeðferðinni verði framhaldið fyrr en í mars eða apríl.

Settu á fót sýndarfyrirtæki

Málið kom upp í september árið 2010. Svikin eru sögð hafa farið þannig fram að fólkið setti á fót sýndarfyrirtæki í þeim eina tilgangi að svíkja fé út úr skattkerfinu.

Fyrirtækin höfðu enga raunverulega starfsemi en fengu í krafti falsaðra gagna og aðgangs að fyrrnefndum starfsmanni Ríkisskattstjóra stórfé vegna byggingar þriggja húsa sem aldrei voru reist. Fyrirtæki gátu þá fengið sérstaka heimild til endurgreiðslu á innskatti á meðan uppbyggingu stóð. Fólkinu tókst þannig að svíkja rúmlega 270 milljónir króna út úr virðisaukaskattskerfinu.

Rannsókn lögreglu var viðamikil enda teygði málið anga sína til Venesúela í Suður-Ameríku, þar sem einn höfuðpauranna, Steingrímur Þór Ólafsson, var handtekinn.

Steingrímur var eftirlýstur af Interpol vegna gruns um eiturlyfjasmygl, skjalafals, peningaþvætti og skattsvik. Hann var svo handtekinn á Santiagó Marínó flugvelli á eyjunni Margarita, þegar hann ætlaði að fara þaðan til Frankfurt í Þýskalandi, að eigin sögn á leið sinni til Íslands. Hann hafði þá dvalið í Venesúela í fimm daga. Fjölmiðlar þar í landi sögðu frá handtöku Steingríms, birtu nafn hans og myndir af honum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×