Sport

Farðu aftur til Afríku

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Whitlock í leik með Giants.
Whitlock í leik með Giants. vísir/getty
Það var brotist inn hjá hlaupara NY Giants í vikunni og í íbúðinni voru skilin eftir frekar óhugguleg skilaboð.

Innbrotsþjófarnir voru búnir að mála hakakross á vegginn hjá hlauparanum, Nikita Whitlock. Einnig var búið að skrifa „KKK“ og „Farðu aftur til Afríku“ á vegginn.

Skartgripum og öðru verðmætu var stolið af Whitlock. Hann var úti að borða með eiginkonu sinni og tveimur börnum er brotist var inn hjá honum. Þetta er í annað sinn sem brotist er inn hjá Whitlock.

„Þetta er algjör viðbjóður. Maður heyrir um svona en aldrei grunar mann að þetta geti komið fyrir heima hjá mér,“ sagði Ashley, eiginkona Whitlock.

„Árið 2017 er að koma. Það er engin þörf á kúgun, ofbeldi og kynþáttahatri í dag.“

Whitlock er í leikbanni eftir að hafa verið gripinn við ólöglega lyfjanotkun í september.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×