Sport

Farah: Ég er 100 prósent hreinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Mo Farah er einn besti langhlaupari heims.
Mo Farah er einn besti langhlaupari heims. vísir/getty
Bretinn Mo Farah, sem vann fimm og tíu kílómetra hlaupin á Ólympíuleikunum í Lundúnum 2012, segist aldrei á ævinni hafa notað notað árangursbætandi efni.

Farah þurfti að svara fyrir sig í ljósi uppljóstrana sjónvarpsþáttarins Panorama á BBC þar sem kom fram að þjálfarinn hans, Alberto Salazar, lét Bandaríkjamanninn Galen Rupp innbyrða testósterón-lyf árið 2002 þegar hann var 16 ára gamall.

Rupp er æfingafélagi Farah en báðir æfa þeir hjá Salazar í búðum sem heita Nike Oregon-verkefnið. Rupp hafnaði í öðru sæti í 10.000 metra hlaupinu á ÓL í London 2012.

„Ég er 100 prósent hreinn. Það er ekki rétt og ósanngjarnt að fólk haldi að ég hafi stytt mér leið á mínum ferli,“ sagði Farah í viðtali við Sky Sports.

Salazar hafnar líka öllum ásökunum og það sama gerir Rupp, en hinn 56 ára gamli Salazar skilaði inn 12.000 orða skýrslu í síðustu viku til að styðja sitt mál.

Í henni má finna tölvupósta og önnur skjöl sem eiga að sanna að hann myndi aldrei leyfa lyfjanotkun innan sinna æfingabúða.

„Ef hann hefur farið yfir línuna og það er sannað mun ég hætta hjá honum. Þetta eru samt bara ásakanir,“ sagði Mo Farah.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×