Bílar

Faraday Future í íslenskri náttúru

Finnur Thorlacius skrifar
Faraday Future FF 91 í íslenskri náttúru.
Faraday Future FF 91 í íslenskri náttúru.
Það eru ófáir bílaframleiðendurnir sem komið hafa hingað til lands með nýja bíla sína svo hafa megi íslenska náttúru í bakgrunni við myndatökur á þeim. Einn þeirra og líklega sá nýjasti er rafmagnsbílaframleiðendinn Faraday Future sem virðist í haust hafa komið með FF 91 bíl sinn hingað til lands og myndað hann í bak og fyrir, aðallega með hrjóstrugt og sendið landslag í bakgrunni.

Þessar myndir sem hér sjást eru áberandi um allan heim þessa dagana og mikið notaðar við kynningu á þessum magnaða bíl. Faraday Future kynnti þennan nýja bíl sinn í síðustu viku á stórri raftækjasýningu í Las Vegas og eðlilega vakti hann þar mikla eftirvæntingu, en hér fer 1.050 hestafla rafmagnsbíll með 610 km drægi. Þessi bíll er ansi snöggur úr sporunum og kemst á 100 km hraða á 2,39 sekúndum.

Kunnuglegt landslag.
Hrjóstrugt landslag Íslands virðist líka þeim Faraday mönnum.
Sandur og meiri sandur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×