Innlent

Fara fram á 53,4 milljónir vegna lokunar moskunnar

Atli Ísleifsson skrifar
Sverrir Agnarsson, formaður Félags íslenskra múslima, ávarpar gesti moskunnar.
Sverrir Agnarsson, formaður Félags íslenskra múslima, ávarpar gesti moskunnar. MYND/SNORRI ÁSMUNDSSON

Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar krefur borgaryfirvöld í Feneyjum um 360 þúsund evrur, eða um 53,4 milljónir króna, vegna lokunar moskunnar sem var framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í ár.

Þetta kemur fram í frétt Art Newspaper. Dómstóll á Ítalíu mun taka mál Kynningarmiðstöðvarinnar gegn Feneyjaborg fyrir miðvikudaginn 29. júlí og er búist við að niðurstaða liggi fyrir nokkrum dögum síðar.

Verkið, sem er hugarfóstur hins svissnesk-íslenska Christop Buchel, er íslömsk moska sem sett hefur verið upp í fornfrægri kaþólskri kirkju frá 10. öld. Moskunni var lokað í maí eftir að hafa verið opnuð einungis tvær vikur fyrr.

Í fréttinni segir að lögmaður Kynningarmiðstöðvarinnar hafi fengið aðgang að þeim skjölum borgarinnar sem tengist málinu.

Vilja fulltrúar borgarinnar meina að verkið hafi brotið gegn reglugerðum um heilbrigðis- og öryggismál. Þá hafa fjölmiðlar greint frá því að feneysk yfirvöld hafi óttast að hætta væri á að íslamskir öfgamenn myndu beina sjónum sínum að verkinu.


Tengdar fréttir

Telur Islamófóbíu ráða lokuninni

Sýningarskáli Íslands á Feneyjartvíæringnum er enn lokaður. Sverrir Agnarsson telur einsýnt að fara verði í skaðabótamál af hálfu íslenska ríkisins.

Stefna á að opna moskuna innan tíðar

Nína H. Magnúsdóttir sýningarstjóri ætlar að leita allra leiða til að opna íslenska skálann á Feneyjatvíæringnum að nýju.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×