Bíó og sjónvarp

Fara fögrum orðum um tónlist Jóhanns í blóðugum hefndartrylli Nicolas Cage

Birgir Olgeirsson skrifar
Nicolas Cage leikur Red Miller í Mandy.
Nicolas Cage leikur Red Miller í Mandy.
Spennutryllirinn Mandy var frumsýndur á Sundance-kvikmyndahátíðinni um liðna helgi. Myndin gerist árið 1983 þar sem maður að nafni Red Miller, leikinn af Óskarsverðlaunahafanum Nicolas Cage, eltir uppi truflaðan hóp djöfladýrkenda sem myrti konuna hans Mandy á hrottafenginn hátt.

Íslenska kvikmyndatónskáldið Jóhann Jóhannsson semur tónlist myndarinnar og er farið fögrum orðum um tónlistina í gagnrýni Variety og Indiewire.

Jóhann Jóhannsson.Getty
Myndin er eftir leikstjórann Panos Cosmatos sem vakti mikla athygli fyrir fyrstu mynd sína Beyond the Black Rainbow sem kom út árið 2010.

Í umfjöllun Variety um Mandy segir að þeir sem sáu fyrstu mynd Cosmatos hafi skipst í tvo hópa, þeir sem hrifust af því og hinir sem urðu hreinlega reiðir við að horfa á myndina.

Gagnrýnandi Variety segir myndina Mandy vera skref fram á við. Leikstjórinn hafi tekið miklum framförum þegar kemur að sjónrænum þætti kvikmyndagerðar sem og þegar kemur að því að segja sögu sem heldur samhengi.

Gagnrýnandinn segir Mandy eflaust eftir að heilla þá áhorfendur sem eru fyrir listrænni myndir. Mandy er að hans mati samsuða djöfladýrkenda hrollvekju og hefndartryllis en þeir sem elska Nicolas Cage í fullum blóma ættu að fá eitthvað fyrir sinn skerf. 

Sú sem leikur Mandy í þessari mynd er leikkonan Andrea Riseborough. Sú er heldur betur Íslandsvinkona en hún leikur í þættinum Crocodile í fjórðu seríu Black Mirror en þátturinn var tekinn upp hér á landi í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×