Innlent

Fannst meðvitundarlaus og illa útleikinn

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Úr Kópavogi
Úr Kópavogi vísir/stefán
Á ellefta tímanum í gærkvöldi fannst meðvitundarlaus karlmaður utan dyra í Kópavogi. Sá var illa leikinn, bæði með mikla áverka í andliti og á líkama. Ekki er vitað um orsök þessa en málið er í rannsókn lögreglu.

Þetta er meðal þesss sem kemur fram í dagbók lögreglu að lokinni kosninganótt. Háskóli Íslands útskrifaði nema í gær og því var margt um manninn í miðbænum. Útlit er fyrir að skemmtanahald hafi farið vel fram en lögreglan þurfti ekki að hafa afskipti af neinum í miðbænum vegna pústra.

Um klukkan hálfníu í gær var tilkynnt um mögulegt heimilisofbeldi í austurbænum. Þegar lögreglu bar að neitaði ölvaður karlmaður að gefa upp nafn og kennitölu. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu vegna frekari rannsóknar málsins.

Skömmu fyrir miðnætti var tilkynnt um innbrot í bifreið í Skeifunni en ekki er vitað hvort eitthvað var tekið úr bifreiðinni. Tveir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um ölvun við akstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×