Innlent

Fannst látinn í fjörunni á Óseyrartanga

Atli Ísleifsson skrifar
Rúmlega hundrað björgunarsveitarmenn tóku þátt í leit að manni eftir að tilkynning barst um mannlausa bifreið Óseyrarbrú í morgun.

Í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Selfossi segir að leitin hafi borið árangur þegar klukkan var rétt gengin tvö þar sem maðurinn fannst látinn í fjörunni á Óseyrartanga, um 300 metra vestan við veitingastaðinn Hafið bláa.

Í tilkynningunni segir að um klukkan hálf tíu í morgun hafi borist tilkynning um mannlausa bifreið á Óseyrarbrú. „Við nánari skoðun benti ýmislegt til að maður sem hafði verið í bifreiðinni hefði fallið af brúnni í ána. Þegar í stað voru björgunarsveitir í Árnessýslu kallaðar út til leitar ásamt sveitum af höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Kafarar frá sérsveit ríkislögreglustjóra, Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu og björgunarsveitum voru til taks á leitarsvæðinu sem var beggja megin Ölfusáróss.“

Skilyrði til leitar voru mjög erfið vegna hvassviðris, rigningar og mikils sandfoks. „Ekki var hægt að notast við þyrlu vegna þess en hún var í viðbragðstöðu. Lögreglan á Selfossi þakkar björgunarsveitarönnum, köfurum og öðrum sem með einhverjum hætti komu að leitinni. Þá er þökkum komið til eiganda Hafsins bláa sem opnuðu veitingastaðinn þegar eftir því var leitað og veittu leitarfólki húsaskjól og hressingu án endurgjalds.“


Tengdar fréttir

Maður fannst látinn

Mannsins hafði verið leitað af lögreglu og björgunarsveitum í Árnessýslu síðan um níuleytið í morgun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×