Íslenski boltinn

Fanndís með bikarinn: Hann er mjög fallegur þessi

Smári Jökull Jónsson á Laugardalsvelli skrifar
Fanndís fagnar ásamt liðsfélögum sínum.
Fanndís fagnar ásamt liðsfélögum sínum. vísir/hanna
Fanndís Friðriksdóttir skoraði þriðja mark Breiðabliks gegn ÍBV í bikarúrslitaleikinn í dag og átti stórgóðan leik fyrir þær grænklæddu.

Hún var komin með bikarinn í hendurnar þegar Vísir náði tali af henni eftir leik.

„Hann er mjög fallegur þessi, sérstaklega þar sem ég hef aldrei unnið hann áður. Þetta er geggjuð tilfinning og ótrúlega skemmtilegt og mér fannst við eiga þetta fyllilega skilið,“ sagði Fanndís skælbrosandi í leikslok.

„Það brýtur hitt liðið niður að fá mark á sig strax á 2.mínútu og við spiluðum þennan leik heilt yfir mjög vel,“ bætti Fanndís við áður en hún fékk væna vatnsgusu yfir sig frá liðsfélögum sínum.

Stuðningsmenn Blika voru í miklu stuði í stúkunni á meðan á viðtalinu stóð og líklega verður fagnað vel og lengi í Smáranum í kvöld.

„Já, miðað við stemmninguna sem er hér í stúkunni þá sýnist mér stefna í veislu í Kópavoginum,“ sagði Fanndís brosandi að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×