Handbolti

Fannar og Donni til Eyja

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Fannar Þór Friðgeirsson er á heimleið og er búinn að semja við ÍBV.
Fannar Þór Friðgeirsson er á heimleið og er búinn að semja við ÍBV. VÍSIR/GETTY
Íslandsmeistarar ÍBV eru strax farnir að styrkja sig fyrir átökin í Olís-deild karla í handbolta næsta vetur og voru í raun búnir að því áður en að tímabilið kláraðist.

Eyjamenn eru búnir að ganga frá samningum við leikstjórnandann Fannar Þór Friðgeirsson og stórskyttuna Kristján Örn Kristjánsson, betur þekktan sem Donna, samkvæmt heimildum Vísis.

Fannar, sem er uppalinn hjá Val, er að koma heim úr atvinnumennsku. Hann hefur spilað með Hamm-Westfalen í þýsku 2. deildinni undanfarin ár en var áður á mála hjá Hage, Grosswallstadt, Wetzlar og Emsdetten.

Fannar, sem er þrítugur og á ellefu landsleiki að baki, verður mikill liðsstyrkur fyrir Eyjamenn en óvíst er hvort núverandi leikstjórnandi liðsins, Róbert Aron Hostert, verði áfram í herbúðum Eyjamanna. Hann er eftirsóttur á fasta landinu.

Kristján Örn, eða Donni, fer frá Fjölni til ÍBV.vísir/anton
Kristján Örn, eða Donni, er tvítug örvhent skytta sem er uppalinn hjá Fjölni en hann spilaði í fyrsta sinn í efstu deild með Fjölnismönnum í Olís-deildinni í vetur en liðið féll eftir hetjulega baráttu.

Þessi magnaða skytta var ein af stjörnum deildarinnar en Kristján Örn skoraði sjö mörk að meðaltali í leik með 53,5 prósent skotnýtingu og gaf 3,4 stoðsendingar að meðaltali í leik auk þess sem hann var með 3,5 löglegar stöðvanir.

Kristján Örn var í fjórða sæti á lista HB Statz yfir bestu leikmenn deildarinnar með 7,83 í heildareinkunn en það er sama einkunn og undrabarnið Haukur Þrastarson í Selfossi var með fyrir frammistöðu sína í deildarkeppninni.

Donni mun leysa af Agnar Smára Jónsson í hægri skyttunni hjá ÍBV en Agnar Smári er á leiðinni til uppeldisfélagsins Vals. Hann kvaddi ÍBV með tveimur Íslandsmeistaratitlum (2014 og 2018) og tveimur bikarmeistaratitlum (2015 og 2018).

Erlingur Richardsson tekur nú við þjálfun Eyjaliðsins af Arnari Péturssyni sem lét af störfum eftir tímabilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×