Handbolti

Fannar búinn að finna sér lið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fannar hefur leikið í Þýskalandi síðan 2010.
Fannar hefur leikið í Þýskalandi síðan 2010. vísir/getty
Handboltamaðurinn Fannar Þór Friðgeirsson hefur skrifað undir samning við þýska B-deildarliðið Eintracht Hagen.

Fannar, sem er uppalinn Valsmaður, hefur spilað í Þýskalandi frá árinu 2010, fyrst með Emsdetten, svo Wetzlar og síðustu tvö ár með Grosswallstadt.

Eintracht Hagen vann sér sæti í B-deildinni á síðasta tímabili í gegnum umspil.

Fannar, sem er 28 ára, skoraði 103 mörk í 36 leikjum með Grosswallstadt í B-deildinni í vetur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×