Lífið

Fangelsismálastjóri vill sjötíu kúlur fyrir raðhúsið: Hefur afplánun í Smartlandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Páll Winkel er að flytja.
Páll Winkel er að flytja. Myndir: Fasteignaljósmyndun.is
Páll Winkel, fangelsismálastjóri, hefur sett raðhús sitt við Hólmatún á sölu en ásett verð er 68,8 milljónir.

Fasteignamat eignarinnar er 43,9 milljónir en um er að ræða 163 fermetra raðhús sem var byggt árið 2000. Inni í því eru þrjú svefnherbergi. Raðhúsið er við enda með fallegum palli og heitum potti á eftirsóttum stað á Álftanesi.

Marta María Jónasdóttir, ritstjóri Smartlandsins á mbl.is, og Páll Winkel, trúlofuðu sig fyrr á þessu ári.

Hér að neðan má sjá myndir af eign Páls en bæði Páll og Marta greina frá sölunni á Facebook eins og sjá má hér að neðan. Af orðum Mörtu má gera ráð fyrir að þau séu að flytja inn saman.

Smekklegt raðhús.
Pottur á pallinum.
Snyrtilegt hjónaherbergi.
Bjart og opið eldhús.
Skemmtilegur sjónvarpskrókur.
Mjög opin stofa.
Nýuppgert baðherbergi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×