Innlent

Fangelsismálastjóra hótað í heitri umræðu um fangelsun bankamanna

Jakob Bjarnar skrifar
Umræðan í tengslum við fangelsun bankamanna hefur reynst heit og í Pál Winkel hringja nafnlausir aðilar og hafa í hótunum.
Umræðan í tengslum við fangelsun bankamanna hefur reynst heit og í Pál Winkel hringja nafnlausir aðilar og hafa í hótunum.
Páll Winkel fangelsismálastjóri má jafnvel sæta hótunum vegna tilfinningaþrunginnar umræðu um aðbúnað fanga, en í umræðunni hefur því verið haldið fram að föngum sé mismunað. Hann fær nú fjölda pósta og hringinga þar sem nafnlausir aðilar fara mikinn. Fangar hafa það almennt á tilfinningunni að bankamenn sem nýverið hafa hafið afplánun, þeir Hreiðar Már Sigurðsson og Ólafur Ólafsson, fái sérmeðferð. Páll segir þetta af og frá.

Miklar tilfinningar í spilinu

Vísir ræddi við Pál vegna málsins og spurður segir hann þetta ekki erfiða umræðu í sjálfu sér.

„Nei, það sem er erfitt er að fólk hefur miklar skoðanir á þessum málaflokki og ekki allir málefnalegir í framgöngu sinni. Og eðli máls miklar tilfinningar í tengslum við stór mál. Við fáum býsna mikla ágjöf, þegar áberandi mál eru í gangi. Aftur, það eina sem við getum gert er að vinna hlutina eftir tilskyldum reglum. Við ættum ekki möguleika að gera þetta að eigin geðþótta. Engu slíku er til að dreifa. Við erum undir miklu eftirliti og góðu; fjölmiðla, umboðsmanns alþingis, ríkisendurskoðunar, pyndinganefnd Evrópuráðsins og öllum þeim lögum sem um okkar málaflokk gilda – þar á meðal jafnræðisreglu stjórnsýslulaga: Sambærileg mál skulu fá sambærilega afgreiðslu. Og sú er raunin.“

Og blaðamaður Vísis getur staðfest að umræðan er heit, þannig hefur þurft að fjarlægja heiftúðug ummæli af athygasemdakerfi við fréttaflutning af þessum málum, og ágætt að nota tækifærið og hvetja til málefnalegrar umræðu um þennan mikilvæga og viðkvæma málaflokk.

Tekur ekki þátt í nornaveiðum

En, nú liggur fyrir að fangar hafa þetta á tilfinningunni?

„Jájá, ég veit það og heyri af því. En, við getum ekki unnið eftir tíðaranda. Það er ekki okkar og viljum ekki taka þátt í nútímanornabrennum. Við erum í réttarríki og vinnum eftir reglum. Punktur.“

Páll segir að sér hafi að undanförnu borist fjölmörg erindi, póstar, hringingar, nafnlaust og undir sérkennilegum nöfnum. Og hafa þá þessir aðilar í hótunum við þig?

„Jahhh, við skulum segja að það séu markatilvik sem maður setur spurningarmerki við.“

Frá árinu 2008 hafa 154 fangar hafið afplánun í Hegningarhúsinu

En, þar sem er reykur, þar er eldur, segir máltækið þannig að Vísir fór þess á leit við Pál að hann færi yfir tölfræðina í málinu. Hann sagði það auðsótt.

„Frá árinu 2008 hafa 154 fangar hafið afplánun í Hegningarhúsinu og að tilteknum tíma liðnum farið í afplánun í opið fangelsi. Af þessum 154 föngum voru 45 dómþolar sem áður höfðu afplánað fangelsisrefsingu í fangelsi, sem sagt 109 voru í sinni fyrstu afplánun,“ segir Páll og hann sendi blaðamanni Vísis meðfylgjandi töflu máli sínu til stuðnings. Hún sýnir hve lengi síðarnefndi hópurinn (þeir sem voru í 1. afplánun) var i Hegningarhúsinu áður en hann fór í opið fangelsi:

10 dagar = 63 fangar

11-20 dagar = 20 fangar

21-30 dagar = 11 fangar

31-40 dagar =  7 fangar

41-50 dagar =  1 fangi

51-60 dagar =  2 fangar

61-70 dagar =  4 fangar

71-80 dagar =  0 fangi

81-90 dagar =  1 fangi

Tölurnar tala sínu máli

Páll segir að meðaltalið sé 14,84 dagar, eða 15 dagar. „Samkvæmt lögum um fullnustu refsinga eiga fangar þess kost að vinna sig upp í afplánun enda sýni þeir af sér góða hegðan. Til dæmis má taka dómþola sem dæmdur hefur verið í 5 ára fangelsisrefsingu, það er ef framganga hans í afplánun ef lögbundin skilyrði eru uppfyllt.“

Og fangelsismálastjóri heldur áfram að rekja það sem hann segir óhrekjandi staðreyndir málsins og sendi blaðamanni meðfylgjandi gögn, sem mega heita upplýsandi:

Miðað við reynslulausn að afplánuðum helmingi myndi afplánun hans vera eftirfarandi:

Afplánun í fangelsi 18 mánuðir (lokað/opið fangelsi).

Afplánun á áfangaheimili 7 mánuðir.

Afplánun undir rafrænu eftirliti 5 mánuðir.

Miðað við reynslulausn að afplánuðum 2/3 hlutum refsingar myndi afplánun hans vera eftirfarandi:

Afplánun í fangelsi 28 mánuðir (lokað/opið fangelsi) Afplánun á áfangaheimili 7 mánuðir Afplánun undir rafrænu eftirliti 5 mánuðir

Á þessu tímabili (2008-2014) hlutu u.þ.b. 70 % fanga reynslulausn annað hvort eftir helming afplánunar eða 2/3 hluta afplánunar, þar af stærri hlutinn að afplánuðum helmingi.


Tengdar fréttir

Fangar telja Ólaf Ólafsson fá sérmeðferð

Ólafur Ólafsson, sem dæmdur var í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir stórfelld efnahagsbrot, er nú þegar kominn í afplánun í fangelsinu að Kvíabryggju eftir tveggja daga dvöl í Hegningarhúsinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×