Innlent

Fangaverðir segjast ekki geta fullnægt kröfum sem til þeirra eru gerðar í lögum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Fangaverðir á Litla-Hrauni og Sogni hafa áhyggjur af stöðu fangelsismála.
Fangaverðir á Litla-Hrauni og Sogni hafa áhyggjur af stöðu fangelsismála. vísír/stefán
Fangaverðir á Litla-Hrauni og Sogni telja að þeir geti ekki að óbreyttu sinnt þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra með lögum um fangelsi og fangavist. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á starfsmannafundi fangavarðanna í gær.

Í ályktuninni segir að fangaverðir mótmæli harðlega þeim niðurskurði og þeirri aðhaldskröfu sem gerð sé í málaflokknum. Segja fangaverðirnir að síðan 2008 hafi rekstrarfé til fangelsismála verið skorið niður um 25 prósent en á sama tíma hafi verkefnum Fangelsismálastofnunar fjölgað.

„Um 450 manns bíða afplánunar og fangelsin hafa verið yfirfull í alltof langan tíma með gríðarlegu álagi sem því fylgir sem bitnar á föngum, aðstandendum og starfsmönnum.  Við köllum eftir skilningi frá Alþingi um að kerfið og starfsmenn þess þola ekki meiri niðurskurð /aðhaldskröfur heldur þarf aukið rekstarfé svo hægt sé að uppfylla þau markmið  sem Alþingi hefur sett fangavörðum m.t.t. betrunar og öryggis.  Við köllum ennfremur eftir úrræðum fyrir geðsjúka fanga sem vistaðir eru á Litla-Hrauni og að þeim málum verði komið í lag svo að sómi sé að,“ segir jafnframt í ályktuninni.


Tengdar fréttir

Ætlar að virkja samfélagsþjónustu til að stytta biðlista í fangelsi

Innanríkisráðherra ætlar að endurskipuleggja framtíðarskipulag fangelsismála til að koma til móts við biðlista, meðal annars með því að virkja samfélagsþjónustu. Ekki sé þó hægt að minnka aðhaldskröfu í fangelsismálum í fjárlögum næsta árs, eins og fangelsismálastjóri hefur gagnrýnt harðlega.

Boðar heildarendurskoðun á fangelsismálum í vetur

Þingmaður Bjartrar framtíðar segir það hróplegt óréttlæti að fangar þurfi að flytjast búferlum til að ljúka afplánun utan fangelsis. Formaður allsherjarnefndar segir heildarendurskoðun málaflokksins nauðsynlega.

470 fangar bíða afplánunar á Íslandi í dag

Listi þeirra sem bíða afplánunar dóma sinna hefur lengst ár frá ári síðan árið 2008. Nýtt fangelsi á Hólmsheiði mun hefja rekstur á næsta ári og er þar pláss fyrir 56 fanga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×